Skyldi nokkurn undra!

Reynsla japönsku þjóðarinnar af kjarnorku í gegn um tíðina er slík, að mér finnst eðlilegt að þeim finnist nú nóg komið. Gallinn er bara sá að nútíma maðurinn er sífellt á höttunum eftir meiri orku og þess vegna er freistingin mikil að beisla kjarnorku til rafmagnsframleiðslu. Ég tel hins vegar að við verðum að fara meira út í að afla orku sem er í sátt við umhverfið sem við lifum í t.d. vindorku og sólarorku sem er alltaf til staðar í umhverfinu í kringum okkur. Síðan þarf að nýta allan lífrænan úrgang til fraleiðslu á metan gasi, sem kæmi til með að hreinsa andrúmsloftið um leið.
mbl.is Japanar mótmæla kjarnorku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Daníelsson

Mér finnst það alltaf gleymast þegar menn tala um vindorku og sólarorku. Það er hin hrikalega sjónmengun sem er miklu meiri en af vatnsaflsvirkjunum og gufuvirkjunum. Ekki er útsýnið fallegt á vesturströnd Jótlands þar sem eru skógar af vindmyllum.

Kristinn Daníelsson, 7.5.2011 kl. 18:01

2 Smámynd: Tryggvi Sveinbjörnsson

Þetta er alveg rétt, og trúlega verður ekki auðvelt að finna lausn sem væri fullkomlega í sátt við umhverfið því miður, en vindmyllur má taka niður þegar ekki er lengur þörf fyrir þær, og þær leka ekki hættulegum geyslavirkum efnum út í umhverfið eins og hefur komið fyrir í kjarnorkuverunum.

Tryggvi Sveinbjörnsson, 8.5.2011 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband